Byltingarkennd nýjung í trolllengjum
Veiðarfæraþjónustan ehf. í Grindavík hefur á undanförnum vikum verið að setja upp trolllengjur fyrir togara, sem kallast plötuhopparar. Nýjungin er frá norska fyrirtækinu Sintef í Þrándheimi, sem hefur tekið yfir rekstur tilraunatanksins í Hirtshals á Jótlandi.
Upphaflega var sett vinna í gang til að skoða ýmsar aðferðir til að bæta og þróa troll, einkum trolllengjuna, sem ekki hefur breyzt neitt í fjölda ára eftir að gúmmíhoppararnir ruddu stálbobbingunum út. Tilraunin fékk nafnið troll nýrrar kynslóðar. Að sögn Harðar Jónssonar, framkvæmdastjóra Veiðarfæraþjónustunnar, sem sett hefur upp nokkur troll í tilraunarskyni með þessari nýjung, eru sex metrar í vænglengd sitt hvorum megin í 18 metra lengju. Í hvorum sex metranna eru sjö plötur, 600 sinnum 800 millimetrar á kant. Keðjur halda þeim saman báðum megin og þannig má stjórna hve mikla þyngd þarf að nota á lengjuna hverju sinni. Önnur útfærsla er með skinnum öðrum megin sem ver betur fyrir grjóti þegar lengjan dregst yfir.
,,Nýjung þessi gerir það að verkum að trollið opnast betur (skverast betur) til vængjanna þannig er hægt að minnka toghlerana, minnka togkraft skipsins og spara umtalsverða olíu, eða halda sig við sömu hlerastærð og stækka trollin. Þá leggur þessi útfærsla trollið betur að botninum án þess að netið dragist eftir grjótinu. Gamla útfærslan leitaði inn á við vegna mótstöðu sjávar og strauma. Þess vegna voru trollhlerar alltaf að stækka og stækka.“ segir Hörður, og bætir við að nú séu nokkur skip að reyna þessa nýjung og eru bundnar miklar vonir við að afli eigi eftir að aukast eða veruleg olía að sparast. Myndir